Enn töfrar í fótum Ronaldo - myndskeið

Ronaldo kann ennþá sitthvað fyrir sér í knattspyrnu.
Ronaldo kann ennþá sitthvað fyrir sér í knattspyrnu. AFP

Ronaldo, fyrrum framherji brasilíska landsliðsins, sýndi það á dögunum að hann getur enn galdrað fram glæsileg tilþrif á knattspyrnuvellinum. Ronaldo lék þá vináttuleik skipuðum félögum hans annars vegar og félögum fyrrum félaga hans í brasilíska landsliðinu, Bebeto, hins vegar. 

Ronaldo og Bebeto urðu saman heimsmeistarar með Brasilíu árið 1994 og Álfumeistarar árið 1997.

Ronaldo lék með Cruziero, PSV Einhoven, Barcelona, Inter Milan, Real Madrid, Milan og Corinthians á glæsilegum ferli sínum. 

Mark Ronaldo má sjá í myndskeiðinu hér að neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert