Hef þurft að flytja oft

Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson. mbl.is/Golli

Guðlaugur Victor Pálsson mun ekki flytja sig um set frá sænska knattspyrnufélaginu Helsingborg áður en lokað verður fyrir félagaskipti nú um mánaðamótin.

Þetta staðfesti hann við Helsingborgs Dagblad, en danska félagið Bröndby vildi m.a. fá miðjumanninn til sín.

„Ég ræddi við fólk í kringum mig og taldi þetta rétta ákvörðun. Ég er 24 ára gamall en hef flutt oft og spilað hjá mörgum félögum, og það er gott fyrir mig og feril minn að dvelja aðeins lengur á sama stað,“ sagði Victor.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert