Messi fékk öll atkvæði nema fimm

Yfirburðir Lionels Messi í kjöri Knattspyrnusambands Evrópu og Samtaka evrópskra fjölmiðla á knattspyrnumanni tímabilins 2014-15 í Evrópu voru algjörir.

Messi fékk 49 atkvæði af 54 mögulegum og því aðeins fimm sem kusu hann ekki. Luis Suárez fékk þrjú atkvæði og Cristiano Ronaldo tvö.

Célia Sasic fékk tæplega tvo þriðju atkvæða í kjörinu á knattspyrnukonu ársins. Hún fékk 11 atkvæði af 18 mögulegum en Amandine Henry fékk 4 atkvæði og Dzeninfer Maroszán fékk 3.

Lionel Messi og Michel Platini forseti UEFA með verðlaunagripinn í …
Lionel Messi og Michel Platini forseti UEFA með verðlaunagripinn í Mónakó. AFP
Þrír bestu á sviðinu rétt áður en niðurstaðan var kynnt: …
Þrír bestu á sviðinu rétt áður en niðurstaðan var kynnt: Luis Suarez, Lionel Messi og Cristiano Ronaldo, ásamt spyrlunum Petyer Schmeichel og Melanie Griffith. mbl.is/Skapti Hallgrímsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert