Ragnar hélt hreinu í Helsinki

Ragnar Sigurðsson í leik með íslenska landsliðinu.
Ragnar Sigurðsson í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Ómar Óskarsson

Landsliðsmiðvörðurinn Ragnar Sigurðsson og samherjar í rússneska liðinu Krasnodar komust örugglega áfram í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld þegar liðið gerði jafntefli í Helsinki. 

Ragnar og samherjar hans héldu hreinu í síðari leiknum gegn HJK í kvöld en leiknum lauk með markalausu jafntefli.

HJK fór illa með KR-inga fyrir nokkrum árum en varð að sætta sig við 1:5 tap samanlagt gegn Rússunum. 

Ragnar lék að venju allan leikinn fyrir Krasnodar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert