„Ronaldo dýrkar brjóstin mín“

Cristiano Ronaldo er mikill kvennabósi.
Cristiano Ronaldo er mikill kvennabósi. AFP

Cristiano Ronaldo, einn besti knattspyrnumaður heims síðustu ár, er með þráhyggju fyrir brjóstgóðum konum, að minnsta kosti að sögn brasilísku fyrirsætunnar Diana Satilho.

„Hann sagðist elska stór brjóst, þess vegna tók hann eftir mér,“ sagði Diana. „Þegar hann sá þau missti hann vitið, eins og lítill krakki í sælgætisibúð.“

Satilho segist hafa hitt Ronaldo á HM 2014 í Brasilíu. Ronaldo hafði síðast samband við hana í desember til þess að láta hana vita að kærastan hans hafi séð skilaboðin þeirra. Þremur mánuðum síðar slitu Cristiano Ronaldo og rússneska fyrirsætan Irina Shayk samvistum.

Svo virðist vera að sambandsslitin hafi ekki verið sameiginleg ákvörðun, eins og sagt var í upphafi. Talið er að Ronaldo hafi verið að fá SMS-skilaboð frá fjölmörgum konum sem leiddi til þess að parið hætti saman.

Diana Satilho.
Diana Satilho.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert