Hjálmar og Haukur unnu báðir

Haukur Heiðar Hauksson og félagar hans í AIK eru í …
Haukur Heiðar Hauksson og félagar hans í AIK eru í eltingaleik við HjálmarJónsson og félaga hans í IFK Gautaborg á toppi efstu deildar í Svíþjóð. Eggert Jóhannesson

Hjálmar Jónsson og Haukur Heiðar Hauksson voru báðir í sigurliði þegar lið þeirra IFK Gautaborg og AIK spiluðu í 22. umferð sænsku úrvaldeildarinnar í knattspyrnu í Svíþjóð í dag.

Hjálmar og félagar hans í IFK Gautaborg báru sigurorð af Gefle með þremur mörkum gegn engu og AIK, lið Hauks Heiðars Haukssonar sigraði Åtvidaberg með einu marki gegn engu. 

Lið Hjámars og Hauks Heiðars eru harðri baráttu um sigur í efstu deild í Svíþjóð. IFK Gautaborg er í efsta sæti deildarinnar með 47 stig og AIK er í þriðja sæti með 45 stig. Það eru átta umferðir eftir af efstu deildinni í Svíþjóð og líklegt að það skýrist í lokaumferðinni hvaða lið fer með sigur af hólmi í deildinni.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert