Robben og Depay á köntunum

Arjen Robben og Aron Einar Gunnarsson í baráttunni í fyrri …
Arjen Robben og Aron Einar Gunnarsson í baráttunni í fyrri leiknum. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Hollenskir blaðamenn sem mbl.is hitti á fréttamannafundi á Amsterdam Arena vellinum í dag reikna fastlega með því að Robin van Persie verði á varamannabekknum þegar Holland mætir Íslandi í undankeppni EM annað kvöld.

Þeir spá því að Klaas-Jan Huntelaar spili sem fremsti maður og þeir Arjen Robben og Memphis Depay spili á köntunum þar sem þeir munu þá etja kappi gegn Birki Má Sævarssyni og Ara Frey Skúlasyni.

Líklegt byrjunarlið Hollendinga lítur þannig út:

Jasper Cillessen - Gregory Van der Wiel, Stefan De Vrij, Bruno Martins Indi,
Daley Blind - Davy Klaassen, Georginio Wijnaldum, Wesley Sneidjer, Arjen Robben, Klaas-Jan Huntelaar, Memphis Depay

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert