Forréttindi að vera í þessum hópi

Fögnuðurinn var gríðarlegur hjá íslensku landsliðsmönnunum eftir leikinn.
Fögnuðurinn var gríðarlegur hjá íslensku landsliðsmönnunum eftir leikinn. mbl.is/Skapti Hallgrimsson

„Þetta er alveg ótrúlegt og það eru forréttindi að vera í hópi með þessum strákum. Þetta er svo flott lið og stemningin og þéttleikinn í liðinu er svo magnaður,“ sagði Jón Daði Böðvarsson við mbl.is eftir sigurinn magnaða gegn Hollendingum í kvöld.

„Nú er bara gamla góða klisjan að núllstilla sig og fara að einbeita sér að leiknum við Kasakstan á sunnudaginn. Við ætlum okkur að klára dæmið í næsta leik og þá þurfum við að vera vel einbeittir,“ sagði Jón Daði sem skilaði flottri frammistöðu eins og allt íslenska liðið í kvöld en Selfyssingurinn kom inn í byrjunarliðið í stað Emils Hallfreðssonar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert