Van Persie markahæstur

Robin van Persie.
Robin van Persie. AFP

Robin van Persie er markahæsti leikmaðurinn af hollensku landsliðsmönnunum sem mæta Íslendingum á Amsterdam Arena í kvöld.

Van Persie hefur 49 mörk í 98 landsleikjum en reiknað er með því að verði á meðal varamanna í leiknum í kvöld.

Klaas Jan Huntelaar kemur næstur með 41 mark í 73 leikjum og þeir Wesley Sneijder og Arjen Robben hafa skorað 28 mörk, Sneijder í 115 leikjum en Robben í 86 leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert