Villas-Boas í sex leikja bann

André Villas-Boas.
André Villas-Boas. AFP

André Villas-Boas, þjálfari rússneska meistaraliðsins Zenit St. Pétursborg, hefur verið úrskurðaður í sex leikja bann af aganefnd rússneska knattspyrnusambandsins. Villas-Boas missti stjórn á skapi í sínu í viðureign Zenit St. Pétursborg og Samara 29. ágúst og sparaði síst stóru orðin í samskiptum við fjórða dómara leiksins.

Zenit tapaði leiknum, 3:1. 

Villa-Boas baðst fljótlega afsökunar á framkomu sinni en það dugði ekki til þess forða Portúgalanum frá leikbanni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert