Vonbrigði hjá Dönum í Parken

Albaninn Berat Djimsiti og Daninn Nicklas Bendtner berjast um boltann …
Albaninn Berat Djimsiti og Daninn Nicklas Bendtner berjast um boltann á Parken í kvöld. AFP

Danir standa ekki of vel að vígi I-riðli undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu karla eftir að þeir náðu aðeins markalausu jafntefli við Albaníu á Parken í kvöld. Danska liðið heldur öðru sæti riðilsins með 11 stig eftir sex leiki en Albanar hafa jafnmörg stig en eiga leik til góða.

Portúgal er í efsta sæti með 12 stig eftir fimm viðureignir eins og Albanar. Danir mæta Armenum á mánudaginn en þá taka Albanar á móti Cristiano Ronaldo og samherjum í portúgalska landsliðinu. 

Serbar og Armenar eru með eitt stig hvor þjóð en Serbar voru sviptir þremur stigum vegna óláta á leik þeirra við Albani fyrr í keppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert