Að athlægi eftir óhapp í beinni (myndskeið)

Natasha Harding.
Natasha Harding.

Það er óhætt að segja að velska landsliðskonan Natasha Harding, leikmaður Manchester City, hafi lent í kröppum dansi í viðtali sem hún var tekin í eftir 2:1 sigur á Notts County um helgina.

Harding fékk þá boltann af krafti í andlitið sem hefur eflaust verið óþægilegt svo ekki sé kveðið fastar að orði, en til að bæta enn á raunir hennar tók City sig til og átti svolítið við myndbandsklippu af atvikinu.

Nú gengur því um alnetið myndskeið af Harding fá bolta í andlitið með laginu Hollaback Girl með Gwen Stefani, eins og sjá má í meðfylgjandi færslu. Harding tók athæfinu hins vegar vel og þegar rennt er yfir Twitter-síðu hennar tekur hún undir að myndbandið er nokkuð skondið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert