Varði þrjú víti í sama leiknum (myndskeið)

Jean-Francois Gillet.
Jean-Francois Gillet. AFP

Jean-Francois Gillet markvörður Mechelen gerði sér lítið fyrir og varði þrjár vítaspyrnur í sama leiknum í gær.

Mechelen og Anderlecht áttust við í belgísku úrvalsdeildinni og skildu liðin jöfn, 1:1. Mechelen getur þakkað markverði sínum fyrir stigið því hann varði þrjár vítaspyrnur eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert