Beckham mættur aftur á Old Trafford

David Beckham á Old Trafford í dag.
David Beckham á Old Trafford í dag. AFP

David Beckham er mættur aftur á fornar slóðir í Manchester-borg, en hann mun þar taka þátt í góðgerðarleik á vegum Unicef í næsta mánuði.

Beckham mun verða fyrirliði lið Bretlands og Írlands undir stjórn Sir Alex Ferguson, gegn úrvalsliði heimsins. Fyrirliði þess liðs verður Zinedine Zidane og mun Carlo Ancelotti stjórna því liði, en leikurinn fer fram þann 14. nóvember.

Eins og sjá má hefur Beckham hins vegar mætt til að skoða aðstæður og lýsti yfir gleði sinni að vera mættur aftur þar sem allt byrjaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert