Tap hjá Katrínu

Katrín Ómarsdóttir í leik með Liverpool.
Katrín Ómarsdóttir í leik með Liverpool. Kopsource

Katrín Ómarsdóttir og stöllur hennar í Liverpool töpuðu fyrir Brescia í fyrri leik liðanna í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Ítalíu í kvöld en leiknum lauk með 1:0 sigri ítalska liðsins.

Sara Gama skoraði eina mark leiksins á 28. mínútu en leikurinn var nokkuð jafn og skiptust liðin á færum.

Katrín lék allan leikinn í liði Liverpool í kvöld en úrslitin eru þó ekki það slæm fyrir enska liðið sem á seinni leikinn eftir á heimavelli.

Bæði þessi lið duttu út í 32-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fyrra en Liverpool datt út fyrir Linköping á meðan Lyon slátraði Brescia.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert