Arijan Ademi, leikmaður Dinamo Zagreb í Króatíu, féll á lyfjaprófi eftir 2:1 sigur liðsins á Arsenal í 1. umferð í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.
Hann spilaði allan leikinn í 2:1 sigri liðsins en hann féll á lyfjaprófi eftir leikinn. Leikmaðurinn bíður nú eftir niðurstöðum úr B-sýninu.
Ademi fór sex sinnum i blóðprufu á síðasta ári og var aldrei fundið neitt í blóði hans og því bíður Dinamo Zagreb með að tjá sig frekar um málið.
Komi upp sama niðurstaða á B-sýni lyfjprófsins þá gæti Ademi fengið ansi langt bann.