Tvíburabræðurnir, Nökkvi Þeyr og Þorri Mar Þórissynir, æfa með þýska 1. deildarliðinu Hannover 96 næstu tvær vikurnar en þetta kemur fram á heimasíðu Þórs.
Nökkvi og Þorri, sem eru 16 ára gamlir, gerðu báðir þriggja ára samning við Þór í sumar en þeir urðu bikarmeistarar með 3. flokki félagsins á þessu tímabili.
Þeir munu æfa með unglingaliði Hannover næstu tvær vikurnar en þýska liðið hafnaði í 13. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.
Þeir hafa ekki langt að sækja hæfileika sína en Þórir Guðmundur Áskelsson, fyrrum leikmaður Þórs og Fram, er faðir þeirra. Hann á að baki 197 leiki í deild og bikar.