Níu þjóðir búnar að tryggja sér EM-sæti

Spánverjarnir Jordi Alba og Paco Alcacer fagna sigri sinna manna …
Spánverjarnir Jordi Alba og Paco Alcacer fagna sigri sinna manna í gær en með honum tryggðu Spánverjar sér sæti á EM. AFP

Níu þjóðir hafa tryggt sér keppnisréttinn í úrslitakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu sem fram fer í Frakklandi næsta sumar.

Þjóðirnar eru; Frakkar (gestgjafar), Íslendingar, N-Írar, Portúgalir, Tékkar, Englendingar, Austurríkimenn, Spánverjar og Svisslendingar.

Níu leikir fara fram í undakeppninni í dag og í kvöld og meðal þeirra þjóða sem geta tryggt sér farseðilinn til Frakklands eru Norðmenn og Walesverjar.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert