Leysigeislinn hjálpaði til - myndskeið

Cesc Fabregas undirbýr sig fyrir vítaspyrnuna í kvöld.
Cesc Fabregas undirbýr sig fyrir vítaspyrnuna í kvöld. Af netinu

Cesc Fabregas, leikmaður Chelsea- og spænska landsliðsins, klúðraði vítaspyrnu í 1:0 sigri á Úkraínu í undankeppni Evrópumótsins í kvöld en hann var truflaður af stuðningsmanni Úkraínu í stúkunni.

Mario Gaspar kom Spánverjum yfir á 22. mínútu áður en liðið fékk vítaspyrnu þremur mínútum síðar. Cesc Fabregas steig á punktinn en lét markvörð Úkraínu verja frá sér.

Þegar myndband af vítaspyrnunni er skoðað þá sést að Fabregas fær leysigeisla í augun áður en hann tekur spyrnuna en atvikið má sjá hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert