Cissé hótaði að birta kynlífsmyndband

Djibril Cissé, fyrrum leikmaður Liverpool, situr nú á bak við lás og slá ásamt þremur öðrum í tenglsum við ásakanir Mathieu Valbuena um að fjórmenningarnir myndu birta kynlífsmyndband með landsliðsmanninum.

Fjórmenningarnir ætluðu að nota myndbandið gegn Valbuena og hótuðu að birta það myndi kappinn ekki borga þeim ákveðið lausnargjald. Samkvæmt franska blaðinu Le Figaro var Cissé handtekinn í gær en verður væntanlega látinn laus í dag.

Fjórmenningarnir hótuðu Valbuena því í E-mail samskiptum að hafa í fórum sínum kynlífsmyndband með honum og myndu birta það ef kappinn myndi ekki borga. Valbuena gerði ekkert slíkt heldur fór þess í stað beint til lögreglunnar.

Valbuena lék eitt sinn með Marseille en er í dag einn hataðasti leikmaður félagsins eftir umdeild félagaskipti fyrir tímabilið. Hann leikur nú með Lyon .

Cissé lék áður með Marseille og fjölda annara liða en talið er að mennirnir tengist Marseille.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert