Við erum enn á lífi í riðlinum

Leikmenn Arsenal á æfingu í morgun. Per Mertesacker er fyrir …
Leikmenn Arsenal á æfingu í morgun. Per Mertesacker er fyrir miðri mynd. AFP

Þýski varnarmaðurinn Per Mertesacker sem leikur í hjarta varnarinnar hjá Arsenal sat fyrir svörum á blaðamannafundi fyrir leik liðsins gegn Dinamo Zagreb í Meistaradeild Evrópu sem fram fer á Emirates annað kvöld. 

„Við viljum að sjálfsögðu komast áfram í Meistaradeild Evrópu, en það verður hins vegar erfitt fyrir okkur sökum slæmra úrslita og slæmrar frammistöðu í fyrstu umferðunum. Við verðum hins vegar að trúa því sjálfir að við getum farið áfram,“ sagði Mertesacker á blaðamannafundinum.

„Við skulum ekki gleyma því að við lögðum eitt besta lið í Evrópu að velli þegar við unnum Bayern München og við verðum að halda áfram á þeirri braut á morgun,“

Arsenal er í þriðja sæti F riðils keppninnar með þrjú stig eftir fjórar umferðir. Arsenal er sex stigum á eftir Olympiacos og Bayern München sem eru í efstu tveimur sætum riðilsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert