„Heppnir að tapa bara 6:1“

Maicon reynir að stöðva Lionel Messi í leiknum í kvöld, …
Maicon reynir að stöðva Lionel Messi í leiknum í kvöld, en Messi skoraði tvö mörk. AFP

Barcelona fór hreinlega á kostum þegar liðið fékk Roma í heimsókn í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Börsungar fóru með 6:1 sigur af hólmi, auk þess sem mark var dæmt af þeim.

„Við reyndum að spila okkar leik en okkur gekk ekki neitt. Við vorum heppnir að tapa bara 6:1. Markmið okkar breytast ekki þrátt fyrir úrslitin en við verðum að spila öðruvísi en við gerðum í kvöld. Við reyndum ekki einu sinni neitt, alveg hreint núll,“ sagði varnarmaðurinn Maicon í liði Roma.

Börsungar eru öruggir áfram í 16-liða úrslitin, en Roma er í öðru sæti E-riðils með jafn mörg stig og Leverkusen sem gerði jafntefli við BATE fyrr í kvöld, og er aðeins einu stigi á eftir. Í síðustu umferðinni mætast Roma og BATE og Leverkusen fær Barcelona í heimsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert