Mögnuð tilþrif Neymars (myndskeið)

Neymar í baráttu við Maicon í kvöld.
Neymar í baráttu við Maicon í kvöld. AFP

Eins og vel hefur verið komið inn á fór Barcelona heldur betur á kostum og rótburstaði Roma, 6:1, í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Yfirburðir Börsunga voru gríðarlegir eins og tölurnar gefa til kynna, en það voru ekki bara mörkin sem glöddu augað heldur ýmsir taktar til viðbótar. Þar var hinn brasilíski Neymar fremstur í flokki og tók til dæmis snilldarlega á móti boltanum í aðdraganda þess að Lionel Messi skoraði annað af tveimur mörkum sínum.

Þessi mögnuðu tilþrif má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert