Theódór Elmar Bjarnason var í byrjunarliði AGF þegar liðið heimsótti VIborg í 17. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld.
Liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn með 18 stig í níunda og tíunda sæti deildarinnar. Lokatölur í leiknum urðu 1:0 Viborg í vil.
Elmar var tekinn af velli á 56. mínútu leiksins. Hann hefur leikið 15 leiki í deildinni með AGF á þessu tímabili og á enn eftir að finna netmöskva andstæðinganna í vetur.