Birkir á skotskónum í sigri Basel

Birkir skoraði fyrsta mark Basel í dag.
Birkir skoraði fyrsta mark Basel í dag. AFP

Birkir Bjarnason var á skotskónum þegar Basel sigraði Luzern, 3:0, í svissnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Birkir skoraði fyrsta mark Basel á 7. mínútu en hann var tekinn af leikvelli tíu mínútum fyrir leikslok.

Basel skoraði öll mörkin í fyrri hálfleik og var sigur liðsins öruggur. Liðið er með 10 stiga forskot á toppi svissnesku deildarinnar, þrátt fyrir að hafa tapað tveimur leikjum á undan leiknum í dag.

Gengi Basel hefur verið gott það sem af er tímabili. Auk þess að vera á toppi deildarinnar með öruggt forskot er Basel komið í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert