Kjartan Henry skoraði í tapi

Kjartan Henry Finnbogason skoraði fyrir Horsens í dag.
Kjartan Henry Finnbogason skoraði fyrir Horsens í dag. Ljósmynd / bold.dk

KR-ingurinn Kjartan Henry Finnbogason var á skotskónum í dag í dönsku 1. deildinni í knattspyrnu. Hann skoraði eina mark Horsens þegar liðið tapaði 3:1 fyrir Næstved.

Kjartan skoraði mark Horsens á 43. mínútu og heimamenn voru 1:0 yfir að loknum fyrri hálfleik. Gestirnir höfðu mikla yfirburði í síðari hálfleik, skoruðu þrjú mörk, og tryggðu sér sigurinn.

Þetta var 8. mark Kjartans á tímabilinu en Horsens er í 3. sæti deildarinnar með 31 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert