Real Madrid á beinu brautinni

Ronaldo sýndi skemmtileg tilþrif í dag.
Ronaldo sýndi skemmtileg tilþrif í dag. AFP

Real Madrid sigraði Elbar, 2:0 á útivelli, í spænsku 1. deildinni í knattspyrnunni í dag. Hinir rándýru Gareth Bale og Cristiano Ronaldo skoruðu mörk Madridinga í leiknum. Real heldur þar með í við Barcelona en munurinn á liðunum er nú sex stig.

Bale kom Madrid yfir á 43. mínútu og Ronaldo innsiglaði sigurinn með marki úr vítaspyrnu átta mínútum fyrir leikslok.

Barcelona er efst í spænsku 1. deildinni með 33 stig en Real kemur þar næst með 27 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert