Fer PSG taplaust í gegnum tímabilið?

Thiago Silva, leikmaður PSG í baráttu við Javier Manquillo, leikmann …
Thiago Silva, leikmaður PSG í baráttu við Javier Manquillo, leikmann Marseilla í leik liðanna um helgina. AFP

Thiago Silva, varnarmaður PSG, telur að liðið geti hæglega farið taplaust í gegnum deildina á yfirstandandi leiktíð, en liðið er ósigrað í fyrstu 25 leikjum liðsins í vetur. Þetta lét Silva hafa eftir sér eftir 2:1 sigur liðsins gegn Marseille um síðustu helgi. 

PSG er með 24 stiga forystu á toppi deildarinnar með 69 stig eftir 25 umferðir. Lærisveinar Laurent Blanc hafa borið sigur úr býtum í 22 leikjum og gert þrjú jafntefli. 

„Ef við höldum áfram að spila eins og við höfum gert hingað til í vetur þá getum við hæglega farið taplausir í gegnum tímabilið í deildinni. Það er hins vegar ekki víst að það takist, en það væri magnað afrek,“ sagði Silva í viðtali við Canal Plus.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert