Skoruðu eftir 10 sekúndur (myndskeið)

Porto-menn leyndu ekki vonbrigðum sínum eftir tapið í gær.
Porto-menn leyndu ekki vonbrigðum sínum eftir tapið í gær. AFP

Porto tapaði óvænt á heimavelli fyrir Arouca, 2:1, í portúgölsku 1. deildinni í knattspyrnu í gær, og er nú sex stigum á eftir toppliði Benfica eftir 21 umferð af 34.

Arouca náði forystunni áður en að nokkur leikmanna Porto hafði svo mikið sem náð að snerta boltann. Markið kom eftir aðeins tíu sekúndna leik eftir sókn fram hægri kantinn og sendingu inn í markteig þar sem Walter González skilaði knettinum í netið.

Porto jafnaði metin en González var ekki hættur og skoraði sigurmark um miðjan seinni hálfleik.

Myndband af fyrsta markinu má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert