Fellur metið í kvöld?

Luis Suárez fagnar marki með Barcelona.
Luis Suárez fagnar marki með Barcelona. AFP

Barcelona getur í kvöld slegið félagsmet þegar liðið sækir Valencia heim í spænsku bikarkeppninni í knattspyrnu í kvöld.

Börsungar jöfnuðu félagsmetið um síðustu helgi þegar þeir spiluðu 28. leikinn í röð án ósigur og góðar líkur eru á að metið falli í kvöld.

Fyrri leik liðanna í síðustu viku lauk með 7:0 sigri Barcelona.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert