Gaf skipanir í gegnum keilu - myndskeið

Sergio Ramirez, þjálfari Guarani.
Sergio Ramirez, þjálfari Guarani. Af netinu

Sergio Ramirez, þjálfari Guarani í Paragvæ, dó ekki ráðalaus er hann var rekinn upp í stúku í 2:2 jafntefli liðsins gegn brasilíska liðinu Figueirense á dögunum.

Ramirez var rekinn upp í stúku um miðjan síðari hálfleik gegn Figueirense en honum tókst samt sem áður að gefa leikmönnum sínum skipanir.

Margir þjálfarar hafa notast við símtæki þegar þeir hafa verið reknir upp í stúku og haft þannig samband við aðstoðarþjálfarann en Ramirez kom með nýja tækni í leikinn. Hann notaði nefnilega keilu til þess að gefa mönnum skipanir.

Hægt er að sjá myndskeið af atvikinu hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert