Jón Daði spilaði í stórsigri

Jón Daði spilaði allan leikinn fyrir Kaiserslautern í kvöld.
Jón Daði spilaði allan leikinn fyrir Kaiserslautern í kvöld. mbl.is/Golli

Kaiserslautern sigraði Paderborn 4:0 í þýsku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld en Jón Daði Böðvarsson lék sinn annan leik fyrir Kaiserslautern.

Jón Daði kom til Kaiserslautern frá Viking um áramótin en hann kom beint inn í byrjunarliðið í fyrsta leik eftir vetrarfrí. Liðið gerði þá 2:2 jafntefli gegn Union Berlin en liðið hafði þó annað í huga í kvöld.

Kaiserslautern vann góðan fjögurra marka sigur en Jón Daði lék allan leikinn í fremstu víglínu.

Liðið er í 6. sæti deildarinnar með 30 stig, sex stigum á eftir Rúrik Gíslasyni og félögum í Nurnberg sem sitja í 3. sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert