Glæsilegt mark í Mexíkó (myndskeið)

Gignac fagnar í leik með Tigres.
Gignac fagnar í leik með Tigres. AFP

Franski sóknarmaðurinn André-Pierre Gignac skoraði fallegt mark í gærkvöldi í Mexíkó í gærkvöldi. Hans lið, Tigres, tapaði þá fyrir Tijuana á heimavelli, 2:1.

Gignac, sem er þrítugur, lék með Marseille í heimalandinu um fimm ára skeið og var um tíma einn af eftirsóttustu sóknarmönnum Evrópu. Það kom því talsvert á óvart þegar hann gekk til liðs við Tigres í Mexíkó síðastliðið sumar.

Markið sem hann skoraði í gærkvöldi má sjá hér að neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert