Kolbeinn og félagar í fimmta sæti

Kolbeinn Sigþórsson skallar að marki.
Kolbeinn Sigþórsson skallar að marki. AFP

Kolbeinn Sigþórsson og samherjar hans í Nantes eru áfram á sigurbraut og eru komnir alla leið upp í fimmta sætið í frönsku knattspyrnunni eftir sigur á Lorient í kvöld, 2:1.

Kolbeinn var varamaður að þessu sinni en kom inná á 64. mínútu leiksins þegar staðan var 2:0 fyrir Nantes.

Liðið er nú aðeins markatölu frá þriðja sætinu sem gefur umspilssæti fyrir Meistaradeild Evrópu. París SG mátti sætta sig við 0:0 jafntefli við Lille í kvöld en er með 25 stiga forystu, samtals 70 stig úr 26 leikjum. Mónakó er með 45 stig, Nice, Saint-Étienne og Nantes eru öll með 39 stig og Rennes 38.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert