Sá hnéskelina koma út (myndskeið)

Michael Krohn-Dehli engist um af kvölum eftir að hafa meiðst …
Michael Krohn-Dehli engist um af kvölum eftir að hafa meiðst í gærkvöld. AFP

Danski landsliðsmaðurinn Michael Krohn-Dehli meiddist með heldur skelfilegum hætti í leik Sevilla gegn Shaktar Donetsk í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í knattspyrnu í gærkvöld.

Krohn-Dehli hafði komið inná sem varamaður í leiknum en aðeins 13 mínútum síðar var hann borinn af velli og fluttur á sjúkrahús, eftir að hafa meiðst illa í vinstra hné.

„Ég sá hnéskelina bara koma út úr hnénu hans,“ sagði Vitolo, liðsfélagi Krohn-Dehlis. Daninn gengst undir aðgerð síðar í dag.

Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá þegar Krohn-Dehli meiðist. Líklega sést það best eftir 44 sekúndur hvernig hnéskelin virðist losna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert