Jóhann enn í markaskónum

Jóhann Berg Guðmundsson í leik með íslenska landsliðinu gegn Danmörku.
Jóhann Berg Guðmundsson í leik með íslenska landsliðinu gegn Danmörku. AFP

Jóhann Berg Guðmundsson heldur áfram að kæta vonsvikna stuðningsmenn Charlton Athletic með mörkum sínum fyrir liðið, en hann skoraði annað marka liðsins í 2:1 sigri gegn Leeds United í ensku B deildinni í knattspyrnu karla í dag. 

Þá lagði Jóhann Berg upp seinna mark Charlton Athletic sem er nú þegar fallið niður í ensku C deildina. Jóhann Berg var í byrjunarliði Charlton Athletic en var tekinn af velli á 72. mínútu leiksins. 

Þetta er annar leikurinn í röð þar sem Jóhann Berg er á skotskónum í liði Charlton Athletic. Jóhann Berg hefur nú skorað sjö mörk í 40 leikjum sínum fyrir Charlton Athletic í vetur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert