Kolbeinn enn frá vegna meiðsla

Kolbeinn Sigþórsson fagnar einu af þremur mörkum sínum fyrir Nantes …
Kolbeinn Sigþórsson fagnar einu af þremur mörkum sínum fyrir Nantes í vetur. AFP

Kolbeinn Sigþórsson er enn frá vegna meiðsla og hann var ekki í leikmannhópi Nantes sem vann 1:0 sigur gegn Nice í frönsku efstu deildinni í knattspyrnu í dag.

Kolbeinn hefur glímt við hnémeiðsli í rúmar tvær vikur og misst af þremur leikjum Nantes á þeim tíma. Nantes er í níunda sæti deildarinnar með 48 stig eftir sigur liðsins í dag. 

Andri Sigþórsson, bróðir og umboðsmaður Kolbeins, gerði sér vonir um að Kolbeinn myndi ná sér í tæka tíð fyrir leikinn gegn Marseille um síðustu helgi, en ljóst er að meiðslin eru alvarlegri en Andri taldi í fyrstu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert