Rúrik lék annan leikinn í röð

Rúrik Gíslason í leik með íslenska landsliðinu gegn Tékkum í …
Rúrik Gíslason í leik með íslenska landsliðinu gegn Tékkum í undankeppni EM 2016. Ljósmynd / Eva Björk Ægisdóttir

Rúrík Gíslason lék annan leik sinn fyrir Nürnberg í röð þegar liðið laut í lægra haldi, 3:1, fyrir Braunschweig í þýsku B deildinni í knattspyrnu í dag. Rúrik lék fyrsta leik sinn í sjö mánuði um síðustu helgi og varð grenilega ekki meint af þeim leik. 

Rúrik var í byrjunarliði Nürnberg en var síðan skipt af velli á 59. mínútu leiksins. Nürnberg er þrátt fyrir tapið öruggt með sæti í umsili um sæti í Bundesligunni að ári þar sem Nürnberg mun mæta þriðja neðsta liði Bundesligunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert