Emil Hallfreðsson og samherjar í Udinese fengu slæman skell á heimavelli í ítölsku A-deildinni í dag.
Udinese tapaði fyrir Tórínó 1:5 á heimavelli en Emil var ekki í byrjunarliðinu og kom inn á sem varamaður á 61. mínútu en þá var staðan orðin 1:4.
Udinese er í 16. sæti og er sex stigum fyrir ofan fallsæti.