Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, skoraði sigurmark Portland Thorns í 1:0 útisigri á Boston Breakers í bandarísku atvinnumannadeildinni í kvöld.
Dagný gekk til liðs við Portland frá Selfyssingum fyrir leiktíðina en hún hefur nú gert tvö mörk í fyrstu þremur leikjunum.
Hún lék allan leikinn fyrir Portland í Boston í kvöld en markið kom á 79. mínútu með skalla eftir aukaspyrnu.
Portland er með sjö stig eftir fyrstu þrjá leikina og er í öðru sæti en liðið á næsta leik gegn Washington Spirits eftir viku. Washington er efst með 9 stig eftir þrjá leiki.