Viðar Örn með þrennu

Viðar Örn Kjartansson
Viðar Örn Kjartansson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Viðar Örn Kjartansson, framherji Malmö í sænsku úrvalsdeildinni var heldur betur í stuði í dag. Malmö sigraði Håcken 3:0 á heimavelli og skoraði Viðar Örn öll mörk liðins.

Óhætt er að segja að Viðar velji rétta tímann til að eiga stórleik, því að nú styttist í að lokahópur íslenska landsliðsins fyrir EM verði tilkynntur.

Eftir frekar sveiflukennda leiktíð í Kína, hefur Viðar Örn fundið fjölina sína í Svíþjóð og hann er nú markahæstur í deildinni með sex mörk í sex leikjum.

Viðar Örn skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik (34. og 38. mín) og bætti svo því þriðja við á 66. mínútu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert