Eyþór heldur í víking

Eyþór Helgi Birgisson í leik með Víkingi Ólafsvík árið 2014.
Eyþór Helgi Birgisson í leik með Víkingi Ólafsvík árið 2014. mbl. is / Árni Sæberg

Eyþór Helgi Birgisson, fyrrverandi leikmaður Víkings Ólafsvíkur, HK, ÍBV og Ýmis hefur ákveðið að halda til Noregs og ganga til liðs við Volda sem leikur í norsku D-deildinni í knattspyrnu. Þetta kemur fram á vefsíðunni Fótbolti.net.  

Eyþór Helgi lék 13 leiki með Fram í 1. deildinni í fyrra og skoraði í þeim leikjum þrjú mörk. Eyþór hefur samtals skorað 38 mörk í 115 deildaleikjum með fyrrgreindum liðum á ferli sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert