Ilkay Gündogan miðjumaðurinn sterki hjá Dortmund og þýska landsliðinu í knattspyrnu missir af Evrópumótinu í Frakklandi í sumar.
Gündogan meiddist illa á hné á æfingu Dortmund-liðsins í dag og verður frá keppni næstu mánuðina. Hann er 25 ára gamall og hefur spilað 16 leiki með þýska landsliðinu.