Eins og að njóta ásta

Sergio Ramos.
Sergio Ramos. AFP

Sergio Ramos, fyrirliði Real Madrid, segir að fyrsti Meistaradeildartitillinn sé eins og að njóta ásta. Það sé ógleymanlegt. 

Í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu árið 2014, þegar Real Madrid og Atlético Madrid mættust, jafnaði Ramos metin fyrir Real Madrid á lokamínútu leiksins og tryggði þeim framlengingu. Real Madrid bætti þremur mörkum við í framlengingunni og hampaði Evrópumeistaratitlinum. Þessi félög mætast á ný í úrslitaleik Meistaradeildarinnar næsta laugardag.

„Maður man alltaf eftir því þegar maður nýtur ásta í fyrsta sinn, en maður getur alltaf bætt sig því þú ert ómögulegur í byrjun,“ sagði Ramos í gríni.

„Fyrsta skiptið er alltaf sérstakt. Ég skoraði mikilvægt mark. Ég er metnaðarfullur fyrir leikinn og vona að ég geti lyft bikarnum á ný.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert