Roy Hodgson, þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu karla, staðfesti það á blaðamannafundi í dag að Fabian Delph, leikmaður Manchester City, verði ekki í 23 manna leikmannahópi enska liðsins í lokakeppni EM sem hefst eftir rúmar tvær vikur vegna nárameiðsla.
Þá sagði Hodgson einnig að Daniel Sturridge, framherji Liverpool, væri að glíma við meiðsli þessa stundina og hann myndi ekki taka þátt í vináttulandsleik enska liðsins gegn Ástralíu á föstudaginn kemur. Sömu sögu er að segja af Gary Cahill, varnarmanni Chelsea.