Fyrsta mark Rashford - myndskeið

Leikmenn enska liðsins fagna marki Marcus Rashford í leiknum.
Leikmenn enska liðsins fagna marki Marcus Rashford í leiknum. AFP

Táningurinn Marcus Rashford fékk draumabyrjun í sínum fyrsta leik fyrir enska karlalandsliðið í knattspyrnu, en hann skoraði eftir rúmar tvær mínútur í fyrsta leik sínum fyrir liðið þegar hann kom liðinu yfir í vináttulandsleik gegn Ástralíu sem fram fer þessa stundina. 

Rashford varð með markinu yngsti leikmaðurinn í sögu enska landsliðsins til þess að skora mark í sínum fyrsta leik fyrir liðið. Mark þessa 18 ára gamla leikmanns sem sló í gegn með Manchester United í vetur má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert