Torres og Ronaldo byrja úrslitaleikinn

Fernando Torres byrjar gegn Real Madrid.
Fernando Torres byrjar gegn Real Madrid. AFP

Atletico Madrid og Real Madrid eigast við í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld en leikið er á San Siro í Mílanó. Fernando Torres og Cristiano Ronaldo byrja báðir í kvöld.

Það má búast við hörkuleik á Ítalíu í kvöld en þessi lið mættust einmitt í úrslitum keppninnar árið 2014.

Real Madrid hafði þá betur eftir framlengingu, 4:1, en Atletico var grátlega nálægt því að taka titilinn. Sergio Ramos jafnaði undir lok leiks og svo sáu þeir Angel Di Maria, Gareth Bale og Ronaldo um að klára dæmið fyrir Real.

Hægt er að sjá byrjunarlið beggja liða hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert