Andartakið þegar Messi sagði stopp (myndskeið)

Messi var niðurbrotinn í gær.
Messi var niðurbrotinn í gær. AFP

Argentíski knattspyrnusnillingurinn Lionel Messi hefur leikið sinn síðasta landsleik, aðeins 29 ára gamall. Messi tók þessa ákvörðun eftir tap Argentínu í úrslitaleik Copa-America í nótt.

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá viðbrögð Messis eftir tapið gegn Síle. Þessi fimmfaldi besti leikmaður heims réð ekki við tilfinningarnar og hágrét, enda mun draumur hans að vinna stórmót með Argentínu aldrei rætast.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert