Dortmund vill Gomez

Mario Gomez í leik með Þýskalandi.
Mario Gomez í leik með Þýskalandi. AFP

Þýska stórliðið Borussia Dortmund hefur gert frábæra hluti á leikmannamarkaðnum til þessa en félagið vonast til að bæta við einum framherja til viðbótar áður en tímabilið hefst.

Dortmund gekk frá kaupum á Mario Götze á dögunum en þýski landsliðsframherjinn Mario Gomez er næstur inn.

Hann er samningsbundinn Fiorentina á Ítalíu en var á láni hjá Besiktas. Hann ákvað að framlengja ekki lánsdvölina sína þar vegna ástandsins í Tyrklandi og virðist sem svo að hann sé á leið til Dortmund.

Búist er við því að hann gangi frá samningum á næstu dögum en þetta yrði mikill hvalreki fyrir Dortmund sem er líklegt til alls á komandi tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert