Tíunda mark Viðars

Viðar Örn Kjartansson.
Viðar Örn Kjartansson. Eggert Jóhannesson

Viðar Örn Kjartansson, leikmaður Malmö FF í Svíþjóð, skoraði eina mark liðsins í 1:1 jafntefli gegn Kalmar í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var tíunda mark hans í deildinni á tímabilinu.

Viktor Elm kom Kalmar yfir undir lok fyrri hálfleiks og leit allt út fyrir að Malmö færi stigalaust úr leiknum en Viðar hélt þó ekki. Hann jafnaði undir lok leiks og tryggði liðinu þar með stig.

Þetta var tíunda mark Viðars í deildinni á þessu tímabili og þrettánda mark hans í heildina ef bikarleikirnir eru teknir með.

Malmö er í efsta sæti deildarinnar með 32 stig eftir 15 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert